Færsluflokkur: Bílar og akstur

Handverksmarkað í Sunnumörk Hveragerði fyrir jólin.

copy_of_img_8122.jpg


Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði verður með handverksmarkað í Sunnumörk Hveragerði fyrir jólin.

 Ákveðnir opnunartímar  eru frá kl. 13. til kl.18 alla eftirtalda daga:

 

Föstudagur 19.11. laugardagur  20.11. og sunnudagur  21. 11.

Föstudagur  26.11. laugardagur  27.11. og sunnudagur  28. 11.

Fimmtudagur  2. 12. föstudagur  3. 12. laugardagur  4. 12. sunnudagur  5. 12.

Föstudagur  10.12. laugardagur  11.12. sunnudagur 12.12

Föstudagur   17.12. og  18.12 - 19.12. -20.12. - 21.12.- 22.12.- 23.12.

 

Þátttökugjald er 8000kr fyrir allan tíman

Helgi kostar 3000kr, aðeins er pláss fyrir örfá borð.

Einn dagur kostar 2000kr, aðeins er pláss fyrir örfá borð.

 

Þeir sem eiga borð eins og við notuðum í fyrra komi með þau.

 

Uppsetning verður fimmtudaginn 18. Nóvember  kl. 17

Enn eru laus örfá borð.

 Þátttaka er pöntuð  tímanlega.  Nánari upplýsingar eru hjá 

Ármanni Ægi S: 862-4949   armannma@gmail.com   armannma@simnet.is


Handverksmarkað í Móttökuhúsinu við Hverasvæðið

copy_of_img_1244.jpg

Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði

Opnar handverksmarkað í Mótttökuhúsinu við Hverasvæðið Hveramörk Hveragerði Safnahelgina á suðurlandi 5.6.7. nóvember. Opið er frá  kl 13 til 18

 

www.HandverkGalleri.is


Það gengur vel á handverksmarkaði í Hveragerði

Eldhúshandklæði frá SteinuMikil  traffík er á handverksmarkaðnum/gallerí Breiðumörk 24 Hveragerði og salan gengur mjög vel. Þegar koma hlé er strax gripið í handverk, framleiðslan fer í fullan gang og unnið að kynningarmálum.

 

Markaðurinn er opinn alla daga frá 13:00 - 18:00 endilega komið og kíkjið á okkur

HandverkGalleri.is


Armbönd úr íslenskri ull

Armband úr ull og steinumHægt er að vinna ýmsa hluti úr íslenskri ull. Armböndin hennar Kristjönu eru úr handþæfðum ullarkúlum  þar sem hún setur saman ýmsa liti og steina sem úr verður dýrindis skart. Þetta og fleira geturðu fundið á markaði/galleri hjá handverkshópnum Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði, Breiðumörk 24. Opið er alla daga frá 13:00 til 18:00 endilega komið og skoðið

 

www.HandverkGalleri.is 


Hrossatennur fást ekki víða

Hrossatönn frá Ármanni ÆgiHrossatennur fást ekki víða en þær fást sem hálsmen hjá Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði handverks/galleri markaðnum Breiðumörk 24 Hveragerði. Á tímabili í dag var örtröð af erlendum ferðamönnum hjá okkur. Opið er frá 13:00 - 18:00 alla daga. Hópar geta fengið opnað nánast þegar þeim hentar.

 

Endilega skoðið heimasíðu okkar HandverkGalleri.is 


Rótarklukkurnar hans Kristjáns vekja alltaf athygli

Rótarklukka eftir Kristján Einar Jónsson

Rótarklukkurnar hans Kristjáns vekja alltaf athygli. Þær eru á handverks markaði/galleri Handverks og hugvits undir Hamri Hveragerði Breiðumörk 24. Opið er alla daga frá kl. 13:00 - 18:00. Opnum fyrir hópa á öðrum tímum. Hægt er að hafa samband í síma 861-4938.

 Endilega skoðið heimasíðuna okkar HandverkGalleri.is


Handverk galleri opnar

Kreppurefur

Handverk gallerí opnar í Breiðumörk 24, Hveragerði. Opið verður alla daga kl. 13:00 - 18:00 frá 5. júní til 1. ágúst. Fjölbreytt handverk og hugvit er í galleríinu, endilega lítið við.

 

Endilega lítið við á heimasíðu okkar: www.HandverkGalleri.is


Aðalfundur kynningafundur

Kynningarfundur Handverks og hugvits undir Hamri  verður haldinn miðvikudaginn 28. apríl kl. 20.00 í Handmenntahúsi Grunnskólans í Hveragerði, Breiðumörk 24.  Allt handverks- og hugvitsfólk velkomið. Markaður/ galleri sumarsins kynnt-ugla eftir Hrönn Waltersdótturur.  Engin félagsgjöld.  Stjórnin. Aðalfundurinn hefst kl.19.30.

Handverks og hugvits markaður í sumar ?

copy_of_img_8568_962730.jpg  Þau eru ögrandi flott veskin hennar Berglindar.

 Í vetur verður hægt að nálgast og fá upplýsingar um handverk og hugvit

í Hveragerði  í síma  692 1860 og 861 4938

Einnig á Heimasíðu HandverkGalleri


Handverk alla daga

copy_of_copy_of_img_8466.jpgHringir úr alskonar efnum eru hjá Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði. Þessi er úr horni og stein. Sjá nánar á

Heimasíðu HandverkGalleri Þar er hægt að finna símanúmer virkra félagsmanna og panta eða koma í heimsókn og skoða handverkið.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband