16.11.2010 | 11:12
Handverksmarkað í Sunnumörk Hveragerði fyrir jólin.
Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði verður með handverksmarkað í Sunnumörk Hveragerði fyrir jólin.
Ákveðnir opnunartímar eru frá kl. 13. til kl.18 alla eftirtalda daga:
Föstudagur 19.11. laugardagur 20.11. og sunnudagur 21. 11.
Föstudagur 26.11. laugardagur 27.11. og sunnudagur 28. 11.
Fimmtudagur 2. 12. föstudagur 3. 12. laugardagur 4. 12. sunnudagur 5. 12.
Föstudagur 10.12. laugardagur 11.12. sunnudagur 12.12
Föstudagur 17.12. og 18.12 - 19.12. -20.12. - 21.12.- 22.12.- 23.12.
Þátttökugjald er 8000kr fyrir allan tíman
Helgi kostar 3000kr, aðeins er pláss fyrir örfá borð.
Einn dagur kostar 2000kr, aðeins er pláss fyrir örfá borð.
Þeir sem eiga borð eins og við notuðum í fyrra komi með þau.
Uppsetning verður fimmtudaginn 18. Nóvember kl. 17
Enn eru laus örfá borð.
Þátttaka er pöntuð tímanlega. Nánari upplýsingar eru hjá
Ármanni Ægi S: 862-4949 armannma@gmail.com armannma@simnet.is
3.11.2010 | 17:38
Handverksmarkað í Móttökuhúsinu við Hverasvæðið
Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði
Opnar handverksmarkað í Mótttökuhúsinu við Hverasvæðið Hveramörk Hveragerði Safnahelgina á suðurlandi 5.6.7. nóvember. Opið er frá kl 13 til 18
Bílar og akstur | Breytt 16.11.2010 kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2010 | 14:12
Vöfflur og kaffi!
Handverk og hugvit undir Hamri Hvergarði býður ykkur að heimsækja okkur að Breiðumörk 24, í Hveragerði miðvikudaginn 28. Júlí frá kl. 15 til 17 og hlusta á tónlist flutta af Hvergerðingum ásamt því að þiggja kaffi og vöfflur.
Vonumst til að sjá ykkur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.7.2010 | 16:04
Pennar úr gullregni og hreindýrshorni.
Pennar úr gullregni og hreindýrshorni eftir Kristján Jónsson má fá á Handverks og hugvits markaðnum/galleri Breiðumörk 24 Hveragerði. Það er opið alla daga frá 09:00 til 18:00. Endilega komið og kíkjið á okkur, allir velkomnir.
Endilega kíkið einnig á heimasíðu okkar www.HandverkGalleri.is
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.7.2010 | 16:23
Opið alla virka daga frá 9 - 18 og frá 13 - 18 um helgar.
Hárspennur í skærum og skemmtilegum litum eftir Ólöfu Guðrúnu Björnsdóttur fást á Handverks og hugvitsmarkaðnum / galleri Breiðumörk 24 Hveragerði. Þar er ótrúlega fjölbreytt handverk eftir Hvergerðinga. Vegna eftirspurnar er nú opið alla virka daga frá kl 9 til 18 og 13 til 18 um helgar. Tökum einnig á móti hópum á öðrum tímum.
Endilega kíkjið á heimasíðu okkar
Vefurinn | Breytt s.d. kl. 16:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2010 | 14:07
Blóm í bæ
Nú er blóm í bæ í Hveragerði og stendur það yfir alla helgina Markaðurinn verður að sjálfsögðu opinn yfir helgina og alla daga frá 13:00 - 18:00 endilega lítið við.
23.6.2010 | 14:48
Það gengur vel á handverksmarkaði í Hveragerði
Mikil traffík er á handverksmarkaðnum/gallerí Breiðumörk 24 Hveragerði og salan gengur mjög vel. Þegar koma hlé er strax gripið í handverk, framleiðslan fer í fullan gang og unnið að kynningarmálum.
Markaðurinn er opinn alla daga frá 13:00 - 18:00 endilega komið og kíkjið á okkur
Bílar og akstur | Breytt 2.7.2010 kl. 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.6.2010 | 18:02
Armbönd úr íslenskri ull
Hægt er að vinna ýmsa hluti úr íslenskri ull. Armböndin hennar Kristjönu eru úr handþæfðum ullarkúlum þar sem hún setur saman ýmsa liti og steina sem úr verður dýrindis skart. Þetta og fleira geturðu fundið á markaði/galleri hjá handverkshópnum Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði, Breiðumörk 24. Opið er alla daga frá 13:00 til 18:00 endilega komið og skoðið
Bílar og akstur | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2010 | 18:02
Hrossatennur fást ekki víða
Hrossatennur fást ekki víða en þær fást sem hálsmen hjá Handverk og hugvit undir Hamri Hveragerði handverks/galleri markaðnum Breiðumörk 24 Hveragerði. Á tímabili í dag var örtröð af erlendum ferðamönnum hjá okkur. Opið er frá 13:00 - 18:00 alla daga. Hópar geta fengið opnað nánast þegar þeim hentar.
Endilega skoðið heimasíðu okkar HandverkGalleri.is
Bílar og akstur | Breytt 11.6.2010 kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2010 | 15:54
Rótarklukkurnar hans Kristjáns vekja alltaf athygli
Rótarklukkurnar hans Kristjáns vekja alltaf athygli. Þær eru á handverks markaði/galleri Handverks og hugvits undir Hamri Hveragerði Breiðumörk 24. Opið er alla daga frá kl. 13:00 - 18:00. Opnum fyrir hópa á öðrum tímum. Hægt er að hafa samband í síma 861-4938.
Endilega skoðið heimasíðuna okkar HandverkGalleri.is